mánudagur, janúar 15, 2007

Sumar

Já það er ekki seinna vænna en að fara að koma sér í svolítið sumarskap. Ég er allavegana orðin verulega spennt fyrir komandi sumri, með öllum sínum blíðviðrisdögum og skemmtilegheitum.

Ég vona líka að Jó mín láti sjá sig á landinu á Typpi 2007 og það væri nú ekki leiðinlegt ef Bellan og Gudda from Oz myndu kíkka við í leiðinni. Svo verður ekki ónýtt að hanga með gettóblasterinn á Austurvelli og spila Kubb á Miklatúni og eiga rómantíska göngutúra við sólsetur á Ægissíðunni. Ég stóla á að Margrét efni gefið loforð og bjóði okkur í óvissuferð til sinna heimahaga og ekki þætti mér leiðinlegt að trítla upp á nokkur fjöll.

Hvert eigum við að fara i Road-trip, stelpur?

Nú, ef að veðurguðirnir bregðast okkur, þá er aldrei að vita nema við gerumst villtar og skellum okkur út fyrir landssteinana og gerum einhvern brjálaðan skandal, eins og okkur einum er lagið.

Já, látið ykkur ekki bregða þó að þið náið mér á sandölum og ermalausum bol nú á næstu dögum. Ég er bara rétt að hita upp fyrir sumarið.

Thelma

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það er náttúrulega kominn 17. janúar, ekki bara er kominn tími til að fara að skipuleggja sumarið, það fer að verða seinasti séns! seisei já.
Ég er mikið til í sumar í svipuðum stíl og 2006, sýnist það einmitt vera á dagskránni..

miðvikudagur, janúar 17, 2007 9:38:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég hef lítð um þessar sumarpælingar þínar að segja en þakka þó kærlega fyrir bjórinn um helgina!

Hugulsamt af þér að stuðla að þessum hausverk mínum daginn eftir ;)

mánudagur, janúar 22, 2007 9:31:00 f.h.  
Blogger Unknown said...

www0622
supreme uk
oakley sunglasses
coach outlet online
ecco shoes
air huarache
michael kors outlet
canada goose jackets
burberry outlet
michael kors outlet
air jordan retro


föstudagur, júní 22, 2018 7:36:00 f.h.  
Blogger yanmaneee said...

yeezy boost
yeezy boost 350 v2
supreme clothing
supreme clothing
kyrie irving shoes
golden goose sneakers
yeezy boost
jordan 11
goyard
nike shox for men

fimmtudagur, september 10, 2020 11:10:00 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home