fimmtudagur, mars 08, 2007

Súr vika, ekki slæm þó...

Verð hreinlega bara að minnast aftur á söngleikinn Leg, sem sýndur er í Þjóðleikhúsinu. Djöfull sem við mættum sveittar á sýninguna eftir spretthlaup niðureftir og djöfull sem við snérum sveittar af henni eftir hlátur, grátur, fruss og afveltur...

Í gær kom Þóra Sif mín í heimsókn. Hún var algjörlega ósjálfbjarga á tölvuna mína, þurfti ítrekað að biðja mig um að hjálpa sér að færa skjáörina og gafst loks upp á gripnum. Stuttu seinna vall upp úr "tölvusnillingnum" Þóru, að eflaust þyrfti ég barað dífragmenta tölvuna mína...
Haaaaa?? Hvað??

Blindi maðurinn var svolítið fyndinn...

Ég fékk skemmtilega setningu beint í fésið í kvöld frá ungum manni, sem ég þekki ekki svo vel:
"Neihh, takk fyrir síðast! Við vorum næstum farin heim saman!"
...og þá var hann rokinn og ég man ekki!

Ég held ég sé pínulítið berdreymin...

Já og hei, mæli með að þið stökkvið út á leigu og náið ykkur í Shopgirl (eða klessist í sófann ykkar og plöggið Skjáinn). Vandræðalegasta mynd sem ég hef séð lengi og það er svo fyndið að vera vandræðalegur. Mér finnst gaman að vera vandræðaleg!

Jebb, ég get ekki annað en beðið helgarinnar með mikilli eftirvæntingu. Þá ætlar meirað segja Margrét að dansa (já og takk fyrir carrot cake og ham[mer]-time í dag Mardí, þú ert öll að verða villt aftur)!!

Thelma

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Berdreymin.. hehe já ég held það! ;-) Let me know if you know that you know, what I know ... je just that you know..
Defragmenta, en ekki hvað? Bwahaha... maður er svo klár ;-)

En hei, það er Gagarín partý í kvöld! ;-)

föstudagur, mars 09, 2007 10:15:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

bwhahahhah þetta var pínu skrítið og fyndið comment hjá þessum strák :p en þakkaðu góðri vinkonu þinni það hmmm..!

föstudagur, mars 09, 2007 7:35:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

And I´m back in the game! Vúhú- ég hlakka líka til þess að dansa með þér í kvöld og kela eins og enginn sé morgundagurinn.... Margrét

laugardagur, mars 10, 2007 1:46:00 e.h.  
Blogger Unknown said...

https://decor-ksa.com/
http://mchaabaty.com/dawadmi/
http://mchaabaty.com/templates/
http://mchaabaty.com/riyadh/
http://mchaabaty.com/stone/

fimmtudagur, janúar 05, 2017 2:14:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home