fimmtudagur, ágúst 24, 2006

Höfuð og háls

Já góðir hálsar... Á morgun ku vera prófið góða sem ég hef lært undir síðasta mánuðinn. Ferlega skrýtið að vera að lesa svona yfir sumartímann og ekki vottar fyrir stressi á þessum bænum. Það er fjarri því að ástæðan sé sú, að ég kunni kúrsinn upp á tíu!! Ég held bara að líkaminn sé ekki alveg að átta sig á því að nú er próftíð og að hann eigi að kikka inn smá adrenalíni af og til. Ég er pínulítið ósátt við það, því ég hef verið kærulaus í dag, síðasta dag fyrir próf!! Það er þó skárra en síðast þegar ég las þessa blessuðu líffærafræði, en þá ældi ég hreinlega og svaf ekki fyrir stressi og spenningi í tvær heilar vikur fyrir próf. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað afköstin voru stórfengleg þá... Hmmm...

Prófið verður semsagt milli hálftvö og hálffjögur á morgun, föstudaginn 25. ágúst árið 2006, og þætti mér voðalega vænt um það að þið gæfuð ykkur svona eins og hálfa mínútu á þessu tímabili, til að senda mér power-super-mega-sega-ofur kraftana sem þið megið missa.

Með fyrirfram þökkum,

Thelma

5 Comments:

Blogger Thora Sif said...

Sendi þér alla mína krafta, hugsa hlýtt til þín elskan! Brake a leg sæta! :)

föstudagur, ágúst 25, 2006 9:56:00 f.h.  
Blogger Halla said...

Ég sendi þér sko krafta.. eins gott að þú hafir staðið þig ;)

mánudagur, ágúst 28, 2006 10:08:00 e.h.  
Blogger Thelma litla said...

Já þakka ykkur fyrir ljúfurnar..! Þetta gekk vonandi nógu vel..=S
Þá er bara að bíða eftir einkunninni...

þriðjudagur, ágúst 29, 2006 11:05:00 f.h.  
Blogger Unknown said...

adidas shoes
ugg boots
coach outlet online
pandora
mlb jerseys
canada goose outlet
maillot football pas cher
off white shoes
ralph lauren outlet
pandora charms
0823wqrsaf

fimmtudagur, ágúst 23, 2018 5:57:00 f.h.  
Blogger Unknown said...

kayno
balenciaga speed
yeezy
hermes belt
lebron 14
retro jordans
golden goose francy
jordan 11
longchamp
bape hoodie

föstudagur, október 05, 2018 1:10:00 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home