föstudagur, apríl 27, 2007

Í dag er merkilegur dagur af því að...

A. ...tvær stórgóðar vinkonur mínar, Halldóra og Sigríður Fanney, eiga afmæli. Til hamingju með það skruddurnar mínar.

B. ...í dag er síðasti dagurinn sem ég mun lesa fyrir fyrsta tannfyllingarprófið mitt á ferlinum.




C. ...í dag fattaði ég hvað það er frábært að keyra ein með GusGus í botni og tralla með.


D. ...í frysta skipti á ævi minni kláraði ég alla fjóra litina í fjögurra lita Bic kúlupennanum mínum (og hef nú átt ansi marga í gegnum tíðina).

Ég var ekki viss hvort ég ætti að ramma hann inn eða ekki og ákvað því bara að henda honum í ruslið með bros á vör.
Thelma

laugardagur, apríl 14, 2007

Vúhú!

Nú hef ég lokið allri verklegri preklínískri vinnu. Það var reyndar í gær. Þá tekur bara klíníkin við, þar sem ég verð eins og fínn tannlæknir í hvítum costume og bora í og deyfi fólk eins og enginn sé morgundagurinn.

Endilega óskið mér til hamingju með þennan merka áfanga í lífi mínu.
Takk!

Thelma

þriðjudagur, apríl 10, 2007

Coupling


Óó, ég elska breska Coupling!
Ég og Bjarni áttum ófáar og góðar stundir fyrir framan skjáinn á Helgamagrastræti 10 hér í denn. Er búin að horfa á gömlu þættina og mikið sem ég get hlegið yfir þeim. Var reyndar að átta mig á því, að líklega horfðum við bara á fyrstu 3 seríurnar fyrir norðan svo ég á, að ég held, eina heila seríu eftir.
Dásamlegt!!
Thelma

föstudagur, apríl 06, 2007

Kommúnisti

Í hvert skipti sem ég hitti ömmu mína og afa, þá kalla þau mig komma.
Það er frábært:)


Lifi byltingin!
Thelma

miðvikudagur, apríl 04, 2007

Í dag...

...á ég ekki lengur lítinn bróðir,
því Jóhann minn er orðinn 14 ára.
Þessi mynd er reyndar tveggja ára gömul, svo þið getið rétt ímyndað ykkur hvað drengurinn hefur vaxið.
Innilega til hamingju með daginn, elsku Jói.
Thelma

þriðjudagur, apríl 03, 2007

Bwaaa...

Þetta er upplagður dagur til að gera eitthvað einstaklega skemmtilegt. Þú þarft samt að bretta upp ermarnar og vinna í mikilvægu sambandi. Ekki einblína á það sem skortir í lífinu heldur það sem þú hefur. Það er dásamlegur eiginleiki.

Jájá, ég er farin í páskafrí..! Það er ferlega notalegt..! Ég ætlað fara í heitapottinn um leið og ég kem heim. Hafið það gott.

Off I pop,


Thelma