fimmtudagur, ágúst 24, 2006

Höfuð og háls

Já góðir hálsar... Á morgun ku vera prófið góða sem ég hef lært undir síðasta mánuðinn. Ferlega skrýtið að vera að lesa svona yfir sumartímann og ekki vottar fyrir stressi á þessum bænum. Það er fjarri því að ástæðan sé sú, að ég kunni kúrsinn upp á tíu!! Ég held bara að líkaminn sé ekki alveg að átta sig á því að nú er próftíð og að hann eigi að kikka inn smá adrenalíni af og til. Ég er pínulítið ósátt við það, því ég hef verið kærulaus í dag, síðasta dag fyrir próf!! Það er þó skárra en síðast þegar ég las þessa blessuðu líffærafræði, en þá ældi ég hreinlega og svaf ekki fyrir stressi og spenningi í tvær heilar vikur fyrir próf. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað afköstin voru stórfengleg þá... Hmmm...

Prófið verður semsagt milli hálftvö og hálffjögur á morgun, föstudaginn 25. ágúst árið 2006, og þætti mér voðalega vænt um það að þið gæfuð ykkur svona eins og hálfa mínútu á þessu tímabili, til að senda mér power-super-mega-sega-ofur kraftana sem þið megið missa.

Með fyrirfram þökkum,

Thelma

mánudagur, ágúst 14, 2006

Draumfarir


Það er greinilegt að prófdagurinn er farinn að nálgast. Það sem helst gefur til kynna spennustig mitt þessa dagana, eru sjúkir draumar... Svo sjúkir að ég vil helst ekki segja frá þeim hér. Reyndar eru líka nokkir sem eru ferlega saklausir, eða þannig... ...til dæmis hafa flestir sem eru mér nánir eignast dreng eða eru að gifta sig, oftar en ekki er ég stödd í e-s konar Manga-veröld þar sem ég berst við hinar ýmsu ófreskjur eða þá að mig dreymir að ég sé að sofa yfir mig í blessaða prófinu. Svo á ég mér líka yndislega dagdrauma... ...yfirleitt innihalda þeir þá sól, sumar, sand og sólhlífarkokteila...

Um að gera að láta sig dreyma svolítið!

Thelma

laugardagur, ágúst 12, 2006

Hasselhofgaurinn


Alltaf ferskur...

Thelma

mánudagur, ágúst 07, 2006

The time of my life


Smá stemmingsmynd úr lífi mínu þessa dagana. The time of my life úr Dirty Dancing er líka lagið mitt þessa dagana. Ég hef reyndar alltaf sagt að maður hafi það sjaldan jafn gott og í próftíð, ég held að það sé bara raunin núna líka. Ég hef það ferlega fínt yfir Sobota mínum.
Jamm og jú, það er bara þannig...

Thelma

laugardagur, ágúst 05, 2006

Verzlunarmannakvöldið mitt


Ohh, þetta myndband kemur mér ALLTAF í gott skap enda taktarnir í hágæðaflokki. Annars lítir út fyrir það að helgin verði ekki eins súr og ég bjóst við... ...ég á nefninlega von á spennandi heimsókn í kvöld! Ætla að preppa mig vel, láta renna í pottinn, kveikja upp undir grillinu og gera nokkrar upphitunaræfingar til að vera tilbúin í slaginn. Kannski ég dansi bara með Napoleon til þess að komast í ennþá sturlaðari gír...

Thelma

miðvikudagur, ágúst 02, 2006

Hmm... ...I wanna eat myself!


Thelma