sunnudagur, október 29, 2006

Overdoze


Held ég sé búin að overdoza á þessum blessuðu lyfjum um helgina! Man kannski ekki mikið af því sem ég hef verið að lesa og þyrfti þess vegna helst að fá mér eins og eina minnispillu til að kippa því í liðinn!

Á einhver einhverja svoleiðis pillu handa mér?

Jæææææææja, back to buisness...

Thelma

fimmtudagur, október 26, 2006

Ohh...


...mig langar svo að fara í jóga og verða liðug eins og kattardýr. Er að hugsa um að skella mér jafnvel á námskeið á nýja árinu og var svona að leita eftir stuðningi og félagsskap e-s ykkar.

Haldið þið ekki að það væri gaman að sveigja sig og beygja eins og þessi myndarlegi maður hérna getur? Hmmm...

Langar e-n með?

Thelma

þriðjudagur, október 24, 2006

Í dag var ég lasin...

...en svo kom elsku bezta Þóra Sif með afmælispakka og eldaði fyrir mig dýrindis kjúklingarétt!!

Takk fyir mig elsku Þóra Sif mín, held ég sé orðin alveg stálhress eftir þessa upplyftingu:)

Thelma

sunnudagur, október 22, 2006

Mikil ást

Svona líður mér akkúrat núna, svo glöð og svo heppin að eiga alla þessa yndislegu vini.
Margrét þú skilur mig, ekki satt? =)

Takk kærlega fyrir mig, fyrir símhringingar og smáskilaboðin og fyrir alveg hreint frábæra helgi.

Thelma

fimmtudagur, október 19, 2006

Afmæliskökur að mínu skapi

Ég mun verða þeim ævinlega þakklát, sem bakar handa mér svo glæsilega köku í tilefni morgundagsins. Fyrir ykkur sem eruð clueless, þá er ég kannski ekki alveg þrjátíu en það styttist þó óðum í það.



Annars verð ég líka alveg sátt ef þið gefið mér bara Svamps köku, hann er svo einstaklega hress og sprækur, alveg eins og gamla konan ég =)



Obsjón númer þrjú er svo Louis Vuitton taska sem má annaðhvort vera á étanlegu formi eða bara the real deal...


Eigum við ekki annars að dansa aðeins, pínulítið annað kvöld?

Thelma

þriðjudagur, október 17, 2006

Batnandi mönnum...

...er víst best að lifa =)

Hvernig ætli Turkmenbashi karlinum hafi dottið þetta í hug?

Thelma

fimmtudagur, október 12, 2006

Heim í heiðardalinn...


Get ekki beðið eftir því að komast heim í sveitina, þar sem ég ætla að eiga góða og rólega helgi í faðmi fjölskyldunar. Skemmtið ykkur vel um helgina, hvar svo sem þið verðið.

Thelma

sunnudagur, október 08, 2006

Ég er með blöðru...

...á þumlinum mínum og ráma rödd eftir magnað gærkveldið.
Þessir áverkar eru til sönnunar þess að ég söng frá mér allt vit og hristi tamborinuna af miklum krafti fram eftir kvöldi.

Ætti, svona tæknilega séð, að vera með harðsperrur líka en ég er greinilega komin í góða dansæfingu.
Spurning um að við fjórðu-u-arar stofnum ekki bara hljómsveit í kjölfar þessa bekkjarpartýs, hæfileikarík erum við í það minnsta!

Takk annars fyrir gott kvöld og reyndar bara góða helgi allir saman.

Ofboðslega kát,

Thelma

þriðjudagur, október 03, 2006

Ef ég hef e-n tíman...


...lýst því yfir að ég hafi óbeit á bandarískum stjórnvöldum og ógeðfelldum gjörðum þeirra, þá hef ég eflaust sjaldan verið jafn viss í minni sök og akkúrat núna!

Mæli með því að þið sjáið The Road to Guantanamo á Kvikmyndahátíð...

Thelma